Hoppa yfir valmynd
25. júní 1998 Utanríkisráðuneytið

Nr. 064, 25. júní 1998: Bifreiðarslys í Bosníu

Fréttatilkynning

frá utanríkisráðuneytinu



Nr. 64.


Vegna frétta af bifreiðarslysi í Bosníu, er hér með upplýst, að Viðar Magnússon lækni í íslensku heilsugæslusveitinni í Bosníu sakaði ekki, þegar brynvarin sjúkrabifreið, sem hann var farþegi í, fór út af vegi og hvolfdi skammt frá bænum Sanski Most í Bosníu. Tveir menn fórust í slysinu, en alls voru sex manns í bifreiðinni.


Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 25. júní 1998.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum