Þróunarmál og hjálparstarf

Þróunarsamvinna

Skipulag

Þróunarsamvinnusvið utanríkisráðuneytisins tók til starfa í janúar 2009. Undir það heyra þróunarsamvinnudeild og Íslenska friðargæslan. Þróunarsamvinnusvið annast marghliða þróunarsamvinnu Íslands sem felst í framlögum ríkisins til alþjóðastofnunar eða samtaka sem ríkistjórnir eiga aðild að, eða sjóðs sem lýtur sjálfstæðri stjórn slíkrar stofnunar . Þróunarsamvinnustofnun Íslands er sérstök stofnun sem lýtur yfirstjórn ráðuneytisins og annast tvíhliða þróunarsamvinnu Íslands sem felur í sér beina samvinnu milli ríkisins og þróunarríkis.

Skipulag ráðuneytisins tekur mið af markmiði nýrra laga um að heildarsýn fáist á málaflokkinn. Stýrihópur um þróunarsamvinnu, undir forystu ráðuneytisstjóra, með þátttöku æðstu embættismanna á sviði þróunarsamvinnu sinnir innra aðhaldi og eftirliti með faglegri stefnumótun, framkvæmd og rekstri.

Sjá skipurit ráðuneytisins

Samkvæmt þróunarsamvinnulögum starfar samstarfsráð um alþjóðlega þróunarsamvinnu og þróunarsamvinnunefnd.  Sjá nánar hér.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica