Hoppa yfir valmynd
5. mars 2024 Utanríkisráðuneytið

Íslensk stjórnvöld flytja dvalarleyfishafa á Gaza til Íslands

72 einstaklingar frá Gaza, með dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar, komu til Kaíró seint í gærkvöldi og halda í kjölfarið til Íslands eftir að ísraelsk stjórnvöld afgreiddu fyrirliggjandi nafnalista um helgina. 

Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra átti símafund með Israel Katz, utanríkisráðherra Ísraels, þriðjudaginn 27. febrúar síðastliðinn til að greiða fyrir afgreiðslu málsins.

Sendinefnd utanríkisráðuneytisins hefur undanfarnar vikur unnið að því að greiða fyrir för fólksins og átt í virkum samskiptum við fulltrúa egypskra og ísraelskra stjórnvalda auk fulltrúa annarra ríkja á svæðinu. Sú vinna hefur nú borið tilætlaðan árangur.

Í þessum samskiptum kom fram að listi Íslands væri einstakur þar sem þar eru einungis dvalarleyfishafar, en engir íslenskir ríkisborgarar. Önnur ríki hafa þannig í mestum mæli veitt eigin ríkisborgurum og fjölskyldum þeirra liðsinni í þessum efnum. 

Framgangur málsins hefur því verið háður afgreiðsluhraða og afstöðu stjórnvalda á svæðinu, en sendinefnd Íslands getur aðeins starfað eftir þeim löglegu diplómatísku ferlum sem ísraelsk og egypsk stjórnvöld hafa sett um framkvæmd slíkra mála. 

Þegar einstaklingar fá dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar er það á þeirra ábyrgð að komast til Íslands fyrir eigin rammleik. Engin almenn skylda hvílir þannig á íslenskum stjórnvöldum til að greiða för þeirra. Í ljósi þeirra einstöku aðstæðna sem uppi eru á svæðinu var þó ákveðið að leggja í sérstakt verkefni hvað þetta varðar. 

„Starfsfólk utanríkisráðuneytisins á hrós skilið fyrir að hafa staðið sig frábærlega við erfiðar aðstæður. Við munum nú leggja okkur fram við að taka vel á móti þessum einstaklingum, sem hafa lifað hörmungar að undanförnu,“ segir Bjarni. „Heildarsýn stjórnvalda í útlendingamálum var kynnt nýlega, en þær breytingar skipta ekki síst máli til að tryggja að þessi fordæmalausa aðgerð skapi ekki umframþrýsting á íslensk kerfi.“

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum