Leit að íslenskum ríkisborgurum erlendis
Leit að íslenskum ríkisborgurum erlendis fer að meginstefnu fram með aðstoð sendiskrifstofa og ræðismanna Íslands erlendis. Þegar um er að ræða leit á Norðurlöndunum er haft samráð við Hagstofu sem getur fengið upplýsingar frá sambærilegum stofnunum á hinum Norðurlöndunum.
Rétt er þó að taka fram að úrræði borgaraþjónustu við leit geta verið takmörkuð og í einhverjum tilvikum er mælt með því að einstaklingar hafi samband við lögreglu og tilkynni að einstaklings sé saknað. Leiðir það til þess að samráð sé haft við erlend lögregluyfirvöld við leit.
