Borgaraþjónusta
Árið um kring gætir borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hagsmuna og öryggis íslenskra ríkisborgara erlendis og veitir þeim ýmis konar aðstoð s.s. þegar slys, veikindi eða andlát ber að höndum á erlendri grundu. Borgaraþjónustan stendur vaktina allan sólarhinginn í síma 354 - 545 9900 árið um kring. Aðstoðin er veitt af starfsmönnum borgaraþjónustu í utanríkisráðuneytinu, sendiskrifstofum Íslands erlendis og ólaunuðum ræðismönnum Íslands um allan heim. Auk þessa hefur utanríkisþjónustan samstarf við utanríkisþjónustur annarra Norðurlanda á vettvangi borgaraþjónustu.
Íslenskir ríkisborgarar geta sjálfir haft samband beint við sendiráð, ræðisskrifstofur og ólaunaða ræðismenn og er upplýsingar um staðsetningu og símanúmer þeirra að finna á vefslóðinni http://www.iceland.org/ Á heimasíðum sendiráðanna undir "Embassies jurisdiction" er að finna upplýsingar um umdæmi þeirra. Sem dæmi hefur sendiráð Íslands í Washington fyrirsvar gagnvart fjölmörgum ríkjum Suður og Mið Ameríku og getur því aðstoðað íslenska ríkisborgara í þeim heimshluta. Sendiráð Íslands í Kína hefur fyrirsvar fyrir fjölmörgum ríkjum Asíu, auk Nýja Sjálands og Ástralíu. Um 240 ólaunaðir ræðismenn Íslands um allan heim eru reiðubúnir til aðstoðar íslenskum ríkisborgurum og er upplýsingar um staðsetningu og símanúmer þeirra að finna á heimasíðum sendiráðanna á ofangreindri vefsíðu.
