Hoppa yfir valmynd
18. september 2012 Utanríkisráðuneytið

Nýr milljarður í þróunarhjálp

Nýr milljarður í þróunarhjálp

Össur Skarphéðinsson skrifar:

Heill milljarður til viðbótar verður settur í þróunarhjálp með því sem ég tel sögulegustu tillögu nýja fjárlagafrumvarpsins. Þróunarhjálp er okkar leið til að láta af höndum rakna til örsnauðs fólks í fátækustu ríkjum heims. Hún beinist ekki síst að mæðrum og börnum. Þróunarhjálp er meðal þeirra þátta sem ég hef lagt mesta áherslu á í starfi mínu sem utanríkisráðherra. Þess vegna gleðst ég einlæglega, eins og örugglega allir Íslendingar, yfir þessum sögulega áfanga.

Sameiginlega hefur þróunarhjálp efnaðri þjóða leitt til þess að barnadauði í heiminum hefur snarminnkað. Egill Helgason benti á í nýlegum pistli á Silfursíðunni að 14 þúsundum færri börn deyja nú daglega en fyrir 20 árum. Íslendingar eiga örlítinn þátt í því kraftaverki – með stuðningi í gegnum þróunarhjálp og örlátt starf og framlög frjálsra félagasamtaka.

Mæðravernd þar sem nánast engin var fyrir, eins og fæðingardeildirnar okkar í Malaví, sjúkrahús sem reist hafa verið eins og spítalinn sem ég afhenti fyrir Íslands hönd fyrr á árinu í Mangochi-héraðinu, fræðsla um hreinlæti og heilsuvernd, stóraukinn aðgangur að vatni sem Íslendingar hafa lagt mikla áherslu á, og einfaldir hlutir sem okkur finnst dálítið undarlegir eins og útikamrar sem hafa verið greiddir af þróunarhjálp, hafa gjörbreytt lífi fjölmargra.

Þjóðin stynur stundum undan því að Alþingi sé aldrei sammála um stóru hlutina. Því er ekki til að dreifa þegar þróunarmál eru annars vegar. Einum rómi samþykkti Alþingi í fyrra tillögu mína um áætlun um þróunarsamvinnu 2011-14, og vildi meira að segja hraða framlögunum. Samkvæmt þeirri áætlun á að verja 0,25% af landsframleiðslu til þróunarmála á árinu 2013. Til að standa við samþykkt Alþingis þurfti að bæta milljarði króna í þróunarhjálp. Það var áhlaupsverk en fyrir þeim milljarði er nú gert ráð í tillögum frumvarps til fjárlaga næsta árs.

Þetta tryggir að Íslendingar geta staðið við loforð sín gagnvart fátækasta fólki heimsins.

Grein utanríkisráðherra í Fréttablaðinu, 18. september 2012 (PDF-skjal 1,2 mb)

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum