Hoppa yfir valmynd
26. mars 2002 Utanríkisráðuneytið

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga 25. maí 2002

Nr. 024

FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu


Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga 25. maí nk. fer fram í öllum sendiráðum Íslands erlendis og aðalræðisskrifstofum Íslands í New York og Winnipeg og hefst þriðjudaginn 2. apríl 2002. Einnig er unnt að kjósa utan kjörfundar hjá kjörræðismönnum Íslands erlendis, samanber meðfylgjandi lista.

Æskilegt er að væntanlegir kjósendur hafi samband við ræðismenn áður en þeir koma til að kjósa. Gert er ráð fyrir að kjósendur kynni sér sjálfir hverjir eru í framboði og hvaða listabókstafir eru notaðir í viðkomandi sveitarfélagi. Hagnýtar upplýsingar um kosningarnar má finna á vefsetrinu: www.kosningar2002.is

Athygli kjósenda er ennfremur vakin á því, að þeim ber sjálfum að póstleggja atkvæði sín eða koma þeim á annan hátt í tæka tíð til viðkomandi kjörstjórnar á Íslandi.



Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 26. mars 2002



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum