Hoppa yfir valmynd
23. ágúst 2016 Utanríkisráðuneytið

Áhugi á beinu áætlunarflugi milli Íslands og Japan

Lilja ásamt japönsku þingmönnunum - mynd

Vinna við gerð tvísköttunarsamnings, samstarf á sviði auðlinda- og orkumála og áhuginn á gerð loftferðasamnings var meðal þess sem Lilja Alfreðsdóttir, utanríkisráðherra, ræddi í dag við hóp japanskra þingmanna sem staddir eru hér á landi. Tilefni heimsóknarinnar er 60 ára afmæli stjórnmálasambands milli Japans og Íslands.

Á fundinum var einnig rætt um samskipti landanna og samstarf á sviði alþjóðamála, viðskipta og menningar. Þar hafa löndin átt áralangt og gott samstarf og er Japan eitt af helstu viðskiptalöndum Íslands. Gagnkvæmur áhugi þjóðanna á að styrkja þessi samskipti enn frekar var ítrekaður í sérstakri yfilýsingu sem utanríkisráðherrar landanna undirrituðu árið 2014 og er nú unnið að því. Mikill áhugi er til dæmis fyrir því að koma á beinu áætlunarflugi milli landanna, en bæði íslensku millilandaflugfélögin búa yfir flugvélum sem gætu flogið til Japans án millilendingar. 

Utanríkisráðherra fagnaði því á fundinum að viðræður um gerð tvísköttunarsamnings milli Íslands og Japan séu hafnar, en íslensk skattayfirvöld telja brýnt að slíkur samningur komist á sem fyrst. Þá voru eldri hugmyndir um gerð fríverslunarsamnings milli Japans og Íslands ítrekaðar og ræddar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum