Hoppa yfir valmynd
14. apríl 2016 Utanríkisráðuneytið

Leggur metnað í vinnu nýrrar landsáætlunar um konur, frið og öryggi

Lilja Alfreðsdóttir

Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra stefnir að því að kynna nýja metnaðarfulla landsáætlun 2017-2020 um framkvæmd ályktunar Sameinuðu þjóðanna 1325 um konur, frið og öryggi á næstu mánuðum. Ráðherra tilkynnti þetta er hún opnaði tveggja daga alþjóðlega ráðstefnu í Reykjavík um ályktunina  og innleiðingu hennar á átakasvæðum. Tilgangur ráðstefnunnar er að meta árangurinn af ályktun 1325 og þær hindranir sem enn standa í vegi fyrir framkvæmd hennar, rúmum fimmtán árum eftir að hún var samþykkt í öryggisráði SÞ.

Lilja sagði í opnunarávarpinu að jafnréttisbaráttan væri jafn mikilvæga og fyrr. Tölurnar töluðu sínu máli; eftir því sem konum fjölgaði í friðarumleitunum og í áhrifastöðum á opinberum vettvangi, drægi úr líkunum á átökum og ofbeldi. „Við verðum að halda áfram að koma þessum skilboðum á framfæri, dropinn holar steininn. En SÞ segja okkur að með þessu áframhaldi verði jafnrétti ekki náð fyrr en árið 2095 og það er einfaldlega óásættanlegt. Við getum ekki beðið svo lengi,“ sagði Lilja.

Hún sagði að utanríkisráðuneytið hefði um árabil lagt áherslu á að brýna friðargæsluliða í jafnréttismálum og stefnt væri að því að slík þjálfun næði til allra starfsmanna ráðuneytisins. Áfram yrði haldið að virkja karla í jafnréttisbaráttunni á svokölluðum Rakarastofuráðstefnum en tvær slíkar hafa þegar verið haldnar á árinu. Þá héldi áfram vinna við Norrænt net kvenna í friðarumleitunum sem var  stofnað í lok síðasta árs en það tengir konur með reynslu af samningaumleitunum og störfum á átakasvæðum.

Að ráðstefnunni standa  Jafnréttisskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna (UNU-GEST) ásamt rannsóknasetrinu EDDU við Háskóla Íslands og utanríkisráðuneytinu. Á meðal frummælenda eru Kristian Berg Harpviken, forstöðumaður friðarrannsóknastofnunarinnar í Osló (PRIO), Cynthia Enloe, prófessor í stjórnmálafræði við Clark-háskóla í Bandaríkjunum, Laura Khoury, prófessor við Birzeit-háskóla í Palestínu, Marriet Schuurman, sérstakur fulltrúi NATO í málefnum kvenna og öryggismála og Gréta Gunnarsdóttir, sendiherra mannréttindamála í íslensku utanríkisþjónustunni.

Ávarp utanríkisráðherra á 1325 ráðstefnu (á ensku)

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum