Hoppa yfir valmynd
13. júní 2001 Utanríkisráðuneytið

Nr. 057, 13. júní 2001 Viðtöl við sendiherra

FRÉTTATILKYNNING

frá utanríkisráðuneytinu

________




Nr. 057


Utanríkisráðuneytið býður fyrirtækjum, samtökum, stofnunum og einstaklingum viðtalstíma við sendiherra Íslands til þess að ræða hagsmunamál sín erlendis, viðskiptamöguleika og önnur málefni þar sem utanríkisþjónustan getur orðið að liði.
Svavar Gestsson, verðandi sendiherra Íslands í Stokkhólmi, verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu fimmtudaginn 14. júní n.k. kl. 9 til 12 eða eftir nánara samkomulagi. Umdæmi sendiráðsins nær einnig til Albaníu, Bangladess, Búlgaríu, Júgóslavíu, Kýpur, Pakistan og Slóveníu.
Eiður Guðnason, sendiherra, verðandi aðalræðismaður Íslands í Winnipeg í Kanada, verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu miðvikudaginn 20. júní n.k. kl. 10-12 eða eftir nánara samkomulagi.
Kristinn F. Árnason, sendiherra Íslands í Ósló, verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu mánudaginn 25. júní n.k. kl. 10-12 eða eftir nánara samkomulagi. Umdæmi sendiráðsins nær einnig til Egyptalands, Makedóníu, Póllands, Slóvakíu og Tékklands.
Jón Baldvin Hannibalsson, sendiherra Íslands í Washington, verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu föstudaginn 6. júlí n.k. kl. 10-11:30 eða eftir nánara samkomulagi. Umdæmi sendiráðsins nær einnig til Argentínu, Brasilíu, Chile, Gvatemala, Kostaríka, Kólumbíu, Mexíkó, Níkaragva, Perú, Úrúgvæ og Venesúela.
Nánari upplýsingar og tímapantanir eru veittar í síma 560-9900.




Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 13. júní 2001.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum