Hoppa yfir valmynd
22. ágúst 2014 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Norðurlöndin undirrita samninga um upplýsingaskipti við Hong Kong

Berglind Ásgeirsdóttir, sendiherra Íslands í París og Linda Lai, efnahags- og viðskiptafulltrúi Hong Kong gagnvart Evrópusambandinu handsala upplýsingaskiptasamninginn.
Berglind Ásgeirsdóttir, sendiherra Íslands í París og Linda Lai, efnahags- og viðskiptafulltrúi Hong Kong gagnvart Evrópusambandinu handsala upplýsingaskiptasamninginn.

Norrænu ríkin (Ísland, Danmörk, Færeyjar, Grænland, Noregur og Svíþjóð) undirrituðu í dag tvíhliða samninga um upplýsingaskipti í skattamálum við Hong Kong, Kína. Samningarnir voru undirritaðir í sendiráði Íslands í París.

Frá árinu 2007 hefur á vegum norrænu ráðherranefndarinnar starfað norrænn stýrihópur sem vinnur að gerð upplýsingaskiptasamninga í skattamálum við bankaleyndar- og lágskattaríki. Með samningunum sem nú eru í höfn við Hong Kong hafa 44 upplýsingaskiptasamningar verið gerðir frá því að verkefnið hófst.  Samningarnir við Hong Kong heimila skattyfirvöldum í Hong Kong og á Norðurlöndunum að óska eftir og taka við skattupplýsingum um fyrirtæki og einstaklinga í löndunum. 

Jafnframt skuldbinda Norðurlöndin og Hong Hong sig til þess að fylgja skilyrðum Global Forum um gagnsæi og upplýsingaskipti og til að berjast gegn skattaundanskotum á heimsvísu.  

Allir samningarnir eru tvíhliða og koma til framkvæmda þegar stjórnvöld beggja ríkja hafa fullgilt þá skv. innlendum rétti. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum