Hoppa yfir valmynd
10. júlí 2014 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Tvísköttunarsamningur við Sviss

Einar Gunnarsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins og  Fabrice Filliez, fyrir hönd svissneska fjármálaráðuneytisins, undirrituðu samninginn.
Einar Gunnarsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins og  Fabrice Filliez, fyrir hönd svissneska fjármálaráðuneytisins, undirrituðu samninginn.

Undirritaður hefur verið nýr samningur milli Íslands og Sviss til að komast hjá tvísköttun á tekjur og eignir.  Af hálfu Íslands undirritaði Einar Gunnarsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins samninginn en Fabrice Filliez fyrir hönd svissneska fjármálaráðuneytisins.

Í nýjum samningi felst fyrst og fremst aðlögun að gildandi stefnu ríkjanna í tvísköttunarmálum og þeim breytingum sem orðið hafa á tvísköttunarfyrirmynd OECD frá því að núgildandi samningur var undirritaður 1988.

Aðrar breytingar í hinum nýja samningi eru fyrst og fremst þær að tekinn er upp afdráttarskattur á tilteknar tegundir þóknana sem ekki er að finna i eldri samningi. Í öðru lagi eru með samningnum tekin af öll tvímæli um að lífeyrissjóðir njóti ívilnana nýja samningsins. Í þriðja lagi var sett inn ákvæði sem heimilar skattlagningu eftirlauna í greiðsluríki.

Á næstu mánuðum munu stjórnvöld vinna að fullgildingu samningsins í báðum samningsríkjum. Vonast er til að samningurinn geti komið til framkvæmda 1. janúar 2016.
.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum