Hoppa yfir valmynd
27. apríl 2001 Utanríkisráðuneytið

Nr. 033, 27. apríl 2001: 57. þing Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna

FRÉTTATILKYNNING

frá utanríkisráðuneytinu

________




Nr. 033


Fimmtugasta og sjöunda þingi Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (Commission of Human Rights), sem staðið hefur yfir undanfarnar vikur, lýkur í Genf í dag. Í Mannréttindaráðinu eiga sæti 53 ríki, sem kosin eru af Efnahags- og félagsmálaráði Sameinuðu þjóðanna (ECOSOC) til þriggja ára í senn. Af hálfu Norðurlanda á Noregur nú sæti í ráðinu.
Efling mannréttinda er órjúfanlegur hluti af starfi Sameinuðu þjóðanna í þágu friðar og öryggis. Á þingum Mannréttindaráðsins er fjallað um stöðu og þróun alþjóðlegra mannréttindamála, mannréttindi í einstökum löndum og réttindi ákveðinna þjóðfélagshópa. Á þinginu nú eins og hin síðari ár byggðist málflutningur allflestra ríkisstjórna, alþjóðasamtaka svo og félagasamtaka á þingfundum ráðsins á því að mannréttindi séu algild og á ábyrgð alþjóðasamfélagsins alls.
Á þinginu voru fluttar tvær norrænar ræður, þ.e. um málefni frumbyggja og mannúðarlög.
Ísland var meðflytjandi að 37 ályktunartillögum sem fjölluðu m.a. um afnám dauðarefsingar, aftökur, baráttu gegn pyntingum, afnám alls ofbeldis gegn konum, réttindi minnihlutahópa, kynþáttamisrétti, útlendingahatur og aðra skylda fordóma, afnám hvers kyns fordóma gagnvart trúarbrögðum, réttindi barnsins, mannréttindi fatlaðra, alnæmi, alþjóðlega mannréttindasamninga, málefni frumbyggja, fátækt, menntun, verjendur mannréttinda og mannúðarlög. Jafnframt var Ísland meðflutningsaðili að sérstökum ályktunartillögum um stöðu mannréttinda í Írak, Íran, Kambódíu, Kongó lýðveldinu, Kúbu, Myanmar, Sierra Leone, Súdan, Tsjetsjníu og á Balkanskaga. Þá var Ísland einnig meðflutningsaðili að tillögu Svíþjóðar, fyrir hönd Evrópusambandsins, um stöðu mannréttinda í kjölfar landnáms Ísraelsmanna á hernumdu svæðunum. Þingið samþykkti ennfremur samhljóða ályktanir formanns ráðsins um stöðu mannréttinda í Afganistan, Vestur-Sahara og á Austur-Tímor.
Nánari upplýsingar um mannréttindaþingið má finna á eftirfarandi veffangi: www.unhchr.ch



Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 27. apríl 2001.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum