Hoppa yfir valmynd
23. nóvember 2012 Utanríkisráðuneytið

Sýningin "Ísland og arkitektúr?" opnuð í Berlín

Mynd: Guðmundur Ingólfsson

Í dag verður sýningin "Ísland og arkitektúr?"  opnuð í sameiginlegri miðstöð sendiráða Norðurlandanna í Berlín.  Þá verður jafnframt blásið til málþings með þátttöku arkitekta frá Íslandi.   Sýningin fjallar um arkitektúr á Íslandi, þar sem hefðbundin byggingarefni á borð við timbur og múrsteina voru um langt skeið ekki aðgengileg og því var notast við gras og mold. Sýningin varpar fram áleitnum spurningum  t.a.m. um þróun arkitektúrs á Íslandi, einu ríkasta landi Evrópu,  á tímum efnahagsuppgangs og efnahagshruns.   Sýningarhönnun annaðist Sabine Schirdewahn en hún byggir m.a. á ljósmyndum Guðmundar Ingólfssonar, ljósmyndara og heimildarmynd breska leikstjórans Henry Bateman "Future of Hope". 

Frumkvæði að sýningunni hafði Peter Cachola Schmal safnsstjóri Þýska arkitektúrsafnsins í Frankfurt sem kom henni á fót innan ramma  Sögueyjunnar Íslands á Bókasýningunni í Frankfurt  haustið 2011 í samstarfi við  Matthias Wagner K listrænan stjórnanda menningardagskrár Sögueyjunnar. Peter Cachola Schmal er jafnframt kynnir á málþinginu.

Þátttakendur í málþinginu eru: Pétur H. Ármannsson, arkitekt,  sem flytur stuttan fyrirlestur um megin einkenni á íslenskum arkitektúr,  Olga Guðrún Sigfúsdóttir  og Jörn Frenzel, arkitektar frá verkefninu Vatnavinir og Steve Christer arkitekt frá Studio Granda.

Arkitektarnir Hjördís Sigurgísladóttir & Dennis Davíð Jóhannesson  fjalla um íslenska sendiherrabústaðinn í Berlín. Halla Helgadóttir framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar tekur jafnframt þátt í umræðum.

Sendiráð Íslands í Þýskalandi efnir til sýningarinnar með stuðningi utanríkisráðuneytisins og Íslandsstofu í samstarfi við Þýska arkitektúrsafnið í Frankfurt og Hönnunarmiðstöð Íslands, sem aðstoðaði við undirbúning málþingsins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum