Hoppa yfir valmynd
27. febrúar 2001 Utanríkisráðuneytið

Nr. 006, 27. febrúar 2001, Viðtalstímar nýútnefnds sendiherra Íslands í Kanada

FRÉTTATILKYNNING

frá utanríkisráðuneytinu

________




Nr. 006


Nýtt íslenskt sendiráð verður opnað í Ottawa, höfuðborg Kanada, hinn 1. maí nk.

Á næstu vikum gefst einstaklingum, fulltrúum fyrirtækja, samtaka og stofnana kostur á að ræða í utanríkisráðuneytinu, Rauðarárstíg 25, við Hjálmar W. Hannesson, nýútnefndan sendiherra Íslands í Kanada, um hagsmunamál sín þar í landi, viðskiptamöguleika og önnur þau málefni, þar sem utanríkisþjónustan gæti orðið að liði.

Nánari upplýsingar og tímapantanir eru veittar í síma 560 - 9900 og í tölvupósti [email protected]




Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 27. febrúar 2001.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum