Hoppa yfir valmynd
2. nóvember 2011 Utanríkisráðuneytið

Danir heita fullum stuðningi við Ísland

Skarphedinsson_og_Wammen
Skarphedinsson_og_Wammen

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í dag fundi með nýjum utanríkisráðherra Dana, Villy Søvndal , og nýjum Evrópumálaráðherra, Nikolai Wammen, í tengslum við fund Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn.

Á fundunum fóru ráðherrarnir yfir stöðu mála í aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins en tveir kaflar í viðræðunum voru opnaðir og þeim lokað nú í október. Þá ræddu þeir fyrirhugaða formennsku Dana í Evrópusambandinu sem hefst um áramót en utanríkisráðherra hefur lýst því yfir að hann vilji opna alla útistandandi kafla í aðildarviðræðunum í formennskutíð Dana.

Á fundinum með Evrópuráðherra Dana staðfesti Nikolai Wammen eindreginn stuðning danskra stjórnvalda við mögulega aðild Íslands að ESB og vilja Dana til að viðhalda góðum gangi í  viðræðunum. Ráðherrarnir ræddu stöðu mála á evrusvæðinu og aðgerðir ESB til ráða bug á skuldavanda einstakra ríkja. 

Á fundi utanríkisráðherra með Villy Søvndal ræddu ráðherrarnir einnig málefni Palestínu og sameiginlega hagsmuni á norðurslóðum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum