Hoppa yfir valmynd
30. ágúst 2011 Utanríkisráðuneytið

Yfirlitsskýrsla um þróunarsamvinnu Íslands

skyrsla
skyrsla

Utanríkisráðuneytið hefur gefið út yfirlitsskýrslu um þróunarsamvinnu  Íslands. Í skýrslunni er í fyrsta sinn dregin upp heildarmynd af þróunarsamvinnu íslenskra stjórnvalda. Þar er að finna yfirlit yfir framlög til þróunarmála 2009-2010 og greint er frá til hvaða svæða, landa og málaflokka framlögin fara. Gefin er innsýn inn í stuðning Íslands til ólíkra verkefna sem öll hafa það að markmiði að draga úr fátækt og stuðla að bættum lífsskilyrðum meðal fátækustu íbúa heims.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum