Hoppa yfir valmynd
29. ágúst 2011 Utanríkisráðuneytið

Sýning um íslenska samtímarithöfunda og skáld opnuð í Árósum

035-(Medium)
035-(Medium)

Bókmenntasýningin Sögueyjan: portrett af íslenskum samtímahöfundum var opnuð á bókmenntadagskránni Vild med Ord innan ramma árlegrar menningarviku í Árósum í Danmörku s.l. föstudag. Sýningin er þáttur í viðleitni sendiráðs Íslands í Danmörku, utanríkisráðuneytisins og mennta- og menningarmálaráðuneytisins að fylgja eftir og efla þann mikla áhuga sem er á íslenskum samtímabókmenntum í Danmörku.

Sýningin samanstendur af veggspjöldum með portrettljósmyndum Kristins Ingvarssonar, ljósmyndara, af á þriðja tug íslenskra rithöfunda og viðtölum Péturs Blöndal, blaðamanns, við þá um hvað í íslenskum söguarfi hafi helst haft áhrif á listsköpun þeirra. Síðarnefndur valdi höfundana sem kynntir eru. Matthias Wagner K sýningarstjóri, sá um hönnun og uppsetningu sýningarinnar en hann er einnig listrænn stjórnandi menningardagskrár Sögueyjunnar í Þýskalandi. Metta Fanø þýddi viðtölin á dönsku. Höfundarnir eru:

Andri Snær Magnason, Arnaldur Indriðason, Auður Jónsdóttir, Bragi Ólafsson, Einar Kárason, Einar Már Guðmundsson, Gerður Kristný, Guðrún Eva Mínervudóttir, Guðrún Helgadóttir, Gyrðir Elíasson, Hallgrímur Helgason, Hannes Pétursson, Jón Kalman Stefánsson, Kristín Marja Baldursdóttir, Kristín Steinsdóttir, Matthías Johannessen, Ólafur Jóhann Ólafsson, Sigurður Guðmundsson, Sjón, Steinunn Sigurðardóttir, Thor Vilhjálmsson, Vigdís Grímsdóttir and Yrsa Sigurðardóttir.

019-(Medium)Sýningin er liður í viðleitni sendiráða Íslands víða um heim á þessu ári til að kynna íslensku bókaþjóðina í tengslum við þátttöku Íslands á stærstu bókasýningu heims Frankfurter Buchmesse í Þýskalandi í október nk. Sýningunni er ætlað að vekja áhuga útgefenda, bókmenntaunnenda og almennings víða um heim á Íslandi og íslenskum bókmenntum. Danskar þýðingar á sumum þessara verka liggja frammi á sýningarstað.

Sturla Sigurjónsson, sendiherra Íslands í Danmörku, opnaði sýninguna í anddyri Musikhuset í Árósum föstudaginn 26. ágúst sl. Hún hangir uppi til 9. september nk. og verður þá flutt til Kaupmannahafnar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum