Hoppa yfir valmynd
11. maí 2011 Utanríkisráðuneytið

Ísland undirritar Evrópusamning um baráttuna gegn ofbeldi gagnvart konum

Uskudar-20110511-00408
Uskudar-20110511-00408

Ísland var í dag á meðal fyrstu 13 aðildarríkja Evrópuráðsins til að undirrita samning um að koma í veg fyrir og berjast gegn ofbeldi gagnvart konum og heimilisofbeldi.

Samningurinn er fyrsti bindandi alþjóðasamningurinn sem tekur heildstætt á baráttunni gegn ofbeldi gegn konum. Hann er lagarammi  um vernd kvenna gegn ofbeldi, forvarnarstarf, saksókn á hendur gerendum og útrýmingu ofbeldis gegn konum og heimilisofbeldis. Eftirfylgni með innleiðingu samningsins í hverju landi fyrir sig er einnig hluti hans.

Fastafulltrúi Íslands hjá Evrópuráðinu, Berglind Ásgeirsdóttir sendiherra, undirritaði samninginn fyrir Íslands hönd á ráðherrafundi Evrópuráðsins, sem nú stendur yfir í Istanbúl í Tyrklandi.  Auk Íslands undirrituðu Austurríki, Finnland, Frakkland, Grikkland, Lúxemborg, Portúgal, Slóvakía, Spánn, Svartfjallaland, Svíþjóð, Tyrkland og Þýskaland samninginn.

Nánari upplýsingar um samninginn er að finna hér:

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum