Hoppa yfir valmynd
9. mars 2011 Utanríkisráðuneytið

Sautján útskrifast frá Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna

Utskrift-sjavarutvegsskoli
Utskrift-sjavarutvegsskoli

Í gær, 8. mars, útskrifuðust sautján nemendur frá fjórtán löndum eftir sex mánaða nám við Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna (HSÞ). Þetta er í þrettánda sinn sem nemendur útskrifast frá Sjávarútvegsskólanum og hafa samtals 223 sérfræðingar frá 43 löndum lokið námi við skólann. Frá stofnun skólans hafa konur verið 35% útskriftarnema.

Námið felst í markvissri þjálfun sem lýkur með verkefni sem hvert um sig tekur á málefni sem nemendurnir eru að kljást við í sínu heimalandi. Að þessu sinni sérhæfðu nemendurnir sig á þremur megin sviðum: gæðastjórnun fiskafurða og –vinnslu, stefnumótun og áætlanagerð og stjórnun sjávarútvegsfyrirtækja og markaðssetningu fiskafurða. 

Starfsemi Sjávarútvegsskólans er fjármögnuð af íslenskum stjórnvöldum og heyrir til framlaga utanríkisráðuneytisins til þróunarmála. Þátttaka Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu byggist á Þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Í samræmi við þau er megináhersla lögð á að uppræta fátækt, aukið jafnrétti kynjanna, málefni kvenna og barna, heilsuvernd, menntun og sjálfbær þróun, s.s. fiski- og orkumál. Stuðningur við Háskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi er eitt af lykilverkefnum á sviði þróunarsamvinnu, en auk Sjávarútvegsskólans starfar á Íslandi Jarðhitaskóli HSÞ og Landgræðsluskóli HSÞ.

Sjávarútvegsskólinn leggur sérstaka áherslu á lönd í Afríku, sunnan Sahara, og smáeyþróunarríki, en einnig koma nemendur frá ýmsum löndum Asíu. Á hverju ári bætast ný lönd í hóp þeirra sem senda sérfræðinga í skólann og í ár eru nemendur í fyrsta sinn frá Barbados, Óman og Indónesíu.

Til viðbótar því sex mánaða námi sem fram fer á Íslandi skipuleggur Sjávarútvegsskólinn stutt námskeið í þróunarlöndum í samvinnu við heimamenn og alþjóðlegar stofnanir, en á árinu 2010 voru haldin fjögur slík námskeið. Áætlað er að á árinu 2011 verði námskeiðin að lágmarki sjö talsins. Skólinn veitir einnig skólastyrki fyrir nemendur sem útskrifast úr skólanum til framhaldsnáms á Íslandi. Hingað til hafa sjö nemendur lokið mastersnámi á Íslandi og þrír hafa lokið doktorsnámi, en nú stunda tveir nemendur mastersnám og sex doktorsnám.

Hermann Ingólfsson, sviðsstjóri þróunarsamvinnusviðs utanríkisráðuneytisins, flutti ávarp fyrir hönd utanríkisráðherra við útskriftina. Ávarpið má lesa hér

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum