Hoppa yfir valmynd
3. nóvember 2010 Utanríkisráðuneytið

Skora á írönsk stjórnvöld að milda dóm yfir Ashtiani

Utanríkisráðherrar Norðurlandanna lýstu í dag yfir miklum áhyggjum vegna frétta af því að aftaka írönsku konunnar Sakineh Mohammadi-Ashtiani væri yfirvofandi. Kröfðust ráðherrarnir þess að írönsk stjórnvöld komi í veg fyrir að dauðadóminum verði fullnægt.

Íranskir dómstólar dæmdu Sakineh Mohammadi-Ashtiani til dauða fyrr á árinu. Lýsa norrænu ráðherrarnir fimm algerri andstöðu við dauðarefsingar og skora á írönsk stjórnvöld að milda dóminn. Þá lýsa ráðherrarnir yfir áhyggjum vegna frétta af erfiðri stöðu mannréttindafrömuða í Íran, af handtökum án dóms og laga, pyntingum og réttarhöldum þar sem réttindi sakborninga séu fyrir borð borin.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum