Hoppa yfir valmynd
11. apríl 2010 Utanríkisráðuneytið

Stuðningur ESB við atvinnu- og byggðaþróun í aðildarríkjunum

Gert er ráð fyrir að á annað hundrað manns muni sækja ráðstefnu um stuðning Evrópusambandsins við atvinnu- og byggðaþróun í aðilarríkjunum sem haldin verður í Salnum Kópavogi fimmtudaginn 15. apríl og föstudaginn 16. apríl 2010. Að ráðstefnunni standa utanríkisráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.

Meðal umfjöllunarefna er hlutverk stuðningskerfa ESB á sviði byggðamála og atvinnuuppbyggingar, s.s. innan sjávarútvegs og landbúnaðar, með áherslu á nýsköpun, menntun og markvissa áætlanagerð. Beint verður sjónum að svæðisbundnum samstarfsáætlunum og stefnu ESB um atvinnuþróun, félagslega samstöðu og uppbyggingu mannauðs í dreifbýli og þéttbýli.

Framkvæmdastjórn ESB mun fjalla um markmið, uppbyggingu og verkefni Byggðaþróunarsjóðs Evrópu, Félags- og mannauðssjóðs Evrópu, Dreifbýlisþróunarsjóðs evrópsks landbúnaðar og Evrópska fiskveiðisjóðsins, auk þess að greina frá þeirra aðstoð sem umsóknarríkjum stendur til boða.

Fyrirlesarar frá Möltu, Finnlandi, Danmörku og Eistlandi fjalla um reynsluna af þeim stuðningi sem þessi ríki hafa notið.

Einnig verður horft til framtíðar en framkvæmdastjórn ESB kynnti nýverið tillögur að stefnu til ársins 2020 um sjálfbæran hagvöxt fyrir alla (Europe 2020).

Ráðstefnan fer fram á ensku og er aðgangur ókeypis. Ráðstefnan er öllum opin og verður hún jafnramt send út á vef utanríkisráðuneytisins. Góðfúslega tilkynnið þátttöku á netfangið [email protected] eða í síma 545 9968 fyrir lok mánudagsins 12. apríl.

Nánari upplýsingar um ráðstefnuna er að finna hér

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum