Hoppa yfir valmynd
22. nóvember 2009 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra heimsækir Spán

Utanríkisráðherra heimsækir Spán
Utanríkisráðherra heimsækir Spán

Össur Skarphéðinsson utanríkisáðherra hefur undanfarna daga verið í vinnuheimsókn á Spáni, þar sem hann fundaði með spænskum ráðamönnum og kynnti sér spænskan sjávarútveg. Spánverjar taka eins og kunnugt er við formennsku í Evrópusambandinu af Svíum nú um áramót.

Utanríkisráðherra átti kvöldverðarfund með Miguel Angel Moratinos utanríkisráðherra og æðstu embættismönnum ráðuneytisins. Hann átti einnig fund með Evrópumálaráðherranum Diego Lopez Garrido í Madrid og var boðið í spænska þingið þar sem hann átti fund með formanni evrópunefndar þingsins, Miguel Arias Canete og oddvita sósíalistaflokksins í nefndinni, Juan Moscoso. Þá fundaði ráðherra og fylgdarlið með forystumönnum spænska vinnuveitendasambandsins og sérfræðingum í sjávarútvegsráðuneytinu.

Þá hélt utanríkisráðherra til Vigo á norð-vesturströnd Spánar þar sem eru höfuðstöðvar spænsks sjávarútvegs. Þar hitti hann forystumenn útgerðarmanna og fiskiðnaðarins, borgarstjóra Vigo og hafnarstjóra og athafnamenn sem eru í viðskiptum við íslensk fyrirtæki. Í Vigo átti ráðherra fundi með formanni og framkvæmdastjóra samtaka útvegsmanna, forystumönnum fiskiðnaðarins, og fulltrúum íslenskra fiskútflytjenda. Þá hitti hann Abel Caballero borgarstjóra Vigo og Corinu Porro hafnarstjóra sem áður var borgarstjóri. Þá átti ráðherra fund með Alfonso Paz-Andrade varaforseta Pescanova og upphafsmanni sjávarútvegssýningarinnar í Vigo.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum