Hoppa yfir valmynd
17. ágúst 2009 Utanríkisráðuneytið

Samningur undirritaður við Icelandair í tengslum við EXPO 2010

Expo undirritun 17 ágúst 2009
Expo_undirritun_17_08_2009

Benedikt Jónsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, og Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, undirrituðu í dag samstarfssamning í tengslum við þátttöku Íslands á heimssýningunni EXPO 2010, sem haldin verður í Shanghæ í Kína á næsta ári. Ferðamál, orka og hugvit eru aðaláherslur Íslands á sýningunni og munu utanríkisráðuneytið, Ferðamálastofa og Icelandair nýta þátttökuna til sérstakrar kynningar á Íslandi sem áfangastað fyrir kínverska ferðamenn í júní á næsta ári.

Í samningnum felst meðal annars að Icelandair mun nýta sér aðstöðu í íslenska skálanum á sýningunni til kynningar á fyrirtækinu fyrir kínverskum fyrirtækjum. Icelandair kemur að mótttöku kínverskra fjölmiðla sem sækja Ísland heim í tengslum við samstarf Norðurlandanna á sýningunni. Þá mun stuðningur Icelandair við verkefnið nýtast í átaki sem utanríkisráðuneytið stendur fyrir í samstarfi við Hönnunarmiðstöð Íslands og Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar til að stuðla að markaðssókn íslenskra listamanna, hönnuða og hugvitsmanna í Asíu.

Skipuleggjendur EXPO 2010 munu afhenda Íslandi leiguskála til afnota þann 25. september næstkomandi. Við það tækifæri verður haldin kynning fyrir fjölmiðla hér heima og í Shanghæ á útliti íslenska skálans, gerð grein fyrir þeim viðburðum sem staðið verður fyrir og samstarfsaðilar verkefnisins formlega kynntir.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum