Hoppa yfir valmynd
7. maí 2009 Utanríkisráðuneytið

Framtíðarsýn Höfðafundarins ekki lengur fjarlæg

Þriðji og síðasti undirbúningsfundur endurskoðunarráðstefnu samningsins um bann við útbreiðslu kjarnavopna (NPT-samningsins), stendur nú yfir í New York, en ráðstefnan sjálf verður haldin í maí á næsta ári. Samningurinn sem er frá árinu 1968 er einn af hornsteinum alþjóðasamfélagsins í öryggis- og afvopnunarmálum.  

Í ræðu sinni á fundinum í gær, kynnti  fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, Dr. Gunnar Pálsson, sendiherra, áherslur íslenskra stjórnvalda í tengslum við NTP-samninginn og væntingar þeirra um árangur endurskoðunarráðstefnunnar á næsta ári.   Í ræðunni kom m.a. fram að vonir væru nú bundnar við það að draumur leiðtoga risaveldanna í Reykjavík árið 1986, um útrýmingu allra kjarnavopna, gætu loksins orðið að veruleika.  Ræða fastafulltrúa fylgir í pdf skjali.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum