Hoppa yfir valmynd
8. janúar 2009 Utanríkisráðuneytið

Afhending trúnaðarbréfs hjá Sameinuðu þjóðunum

Dr. Gunnar PálAfhend_trun_GPsson, sendiherra, afhenti í dag Ban Ki-moon, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, trúnaðarbréf sitt sem fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum (SÞ) í New York. Hann ræddi við aðalframkvæmdastjórann að athöfninni lokinni; vottaði honum samúð vegna nýlegs dauðsfalls starfsmanns SÞ á Gaza-svæðinu og fullvissaði aðalframkvæmdastjórann um óskiptan stuðning Íslands við störf hans og stofnunarinnar. Þeir ræddu um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs og störf Íslands að sjálfbærri þróun og umhverfismálum.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum