Hoppa yfir valmynd
12. nóvember 2008 Utanríkisráðuneytið

Sparnaður og hagræðing í rekstri utanríkisráðuneytisins

Utanríkisráðherra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, hefur kynnt ríkisstjórninni tillögur sínar til fjármálaráðuneytisins um sparnað og hagræðingu í rekstri og útgjöldum utanríkisþjónustunnar sem nemur 2,2 milljörðum króna eða um 20% miðað við fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár. Sendiskrifstofum verður fækkað og hagrætt í rekstri annarra. Dregið verður úr kostnaði við þátttöku Íslands í alþjóðlegum verkefnum og framlög til varnar- og þróunarmála á næsta ári verða minnkuð.

Fjórum sendiskrifstofum verður lokað á næsta ári, sendiráðum Íslands í Pretoríu og Róm, fastanefnd Íslands við Evrópuráðið í Strassborg auk einnar af sendiskrifstofum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, sem hefur stöðu sendiráðs. Frekari lokanir sendiskrifstofa eru áformaðar á árinu 2010.

Utanríkisráðuneytið mun auk þess skoða sérstaklega með hvaða hætti er hægt að hagræða í húsnæðiskosti sendiskrifstofa og er stefnt að því að skila ríkissjóði söluhagnaði frá 500 - 1000 m.kr. á árinu 2009. Tveir sendiherrar láta af embættum í upphafi árs 2009 og fyrir liggur að aðrir fjórir láti af embætti síðar á árinu. Veruleg fækkun verður því á næsta ári í hópi sendiherra.

Sérstök áhersla verður lögð á hagræðingu í almennum rekstri , bæði sendiskrifstofa og ráðuneytis. Útgjöld til ferðalaga, risnu og vegna húsnæðis verða öll metin með tilliti til þess hvort þau séu óhjákvæmileg.

Útgjöld til varnarmála verða lækkuð um 257 milljónir króna. Útgjöld til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu verða dregin saman tímabundið þótt áfram verði stefnt að því að ná markmiðum alþjóðasamfélagsins til lengri tíma litið. Með niðurskurðinum lækkar kostnaður vegna þróunarsamvinnu um ríflega 1.6 milljarða króna. Framlag til þróunarsamvinnu verður 0,24% af þjóðarframleiðslu í stað 0,35% eins og stefnt hafði verið að.

Þátttaka Íslands í alþjóðlegum verkefnum verður endurmetin. Má sem dæmi nefna þátttöku Íslands í heimssýningunni í Sjanghæ árið 2011. Kostnaður vegna hennar verður um 30% af því sem upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir og njótum við velvildar Kínverja sem auðveldar þátttöku í sýningunni.

Þá hefur skipulag utanríkisráðuneytisins verið endurskoðað og öðlast breytingarnar gildi frá og með deginum í dag. Skrifstofur ráðherra og ráðuneytisstjóra hafa verið sameinaðar í því skyni að styrkja yfirstjórn ráðuneytisins og ná fram frekari hagkvæmni í starfsemi utanríkisþjónustunnar. Skrifstofan heyrir undir ráðuneytisstjóra. Kristínu A. Árnadóttur sem skipuð hefur verið sendiherra hefur verið falið að stýra hinni nýju skrifstofu yfirstjórnar.

Í kjölfar nýrra laga um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands mun nýtt þróunarsamvinnusvið annast málefni marghliða þróunarsamvinnu og friðargæslu auk þess að fara með málefni er varða Þróunarsamvinnustofnun Íslands fyrir hönd ráðuneytisins. Hermann Örn Ingólfsson sendifulltrúi mun veita hinu nýja sviði forstöðu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum