Hoppa yfir valmynd
23. október 2008 Utanríkisráðuneytið

Beiðni um upplýsingar frá Íslendingum um ósanngjarna meðferð erlendis

Í ljósi frétta af því að Íslendingar hafi orðið fyrir óþægindum eða ósanngjarnri meðferð erlendis, vegna ástandsins í efnahagsmálum, óskar utanríkisráðuneytið eftir staðfestum uplýsingum um slík tilvik. Ráðuneytið leggur ríka áherslu á að fá upplýsingar frá fyrstu hendi og eru viðkomandi hvattir til að senda tölvupóst á netfangið [email protected] um tilgreind atvik.

Markmið ráðuneytisins með þessu er að safna saman upplýsingum um atvik af þessu tagi til þess að hægt sé að fá skýra mynd af þeim vandamálum sem að almenningi steðja erlendis í beinum tengslum við núverandi aðstæður og bregðast við eftir atvikum.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum