Hoppa yfir valmynd
11. ágúst 2008 Utanríkisráðuneytið

Ferðaviðvörun vegna ástandsins í Georgíu

Vegna ófriðarástands í Georgíu ráðleggur utanríkisráðuneytið Íslendingum eindregið frá því að ferðast til landsins. Ráðuneytið óskar jafnframt eftir upplýsingum um þá Íslendinga sem kunna að vera í landinu. Þeir sem staddir eru í Georgíu eða vita um Íslendinga í landinu geta haft samband við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins í síma 545-9900 allan sólarhringinn og mun utanríkisráðuneytið áfram fylgjast grannt með stöðu mála í Georgíu.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum