Hoppa yfir valmynd
28. febrúar 2008 Utanríkisráðuneytið

Ísland hyggst viðurkenna sjálfstæði Kósóvó

Í kjölfar sjálfstæðisyfirlýsingar Kósóvó frá 17. febrúar sl. hafa íslensk stjórnvöld ákveðið að viðurkenna sjálfstæði Kósóvó en ekki liggur fyrir endanleg ákvörðun um dagsetningu. Hafa ber öryggi og stöðuleika á svæðinu að leiðarljósi, einkum í ljósi þeirra átaka og ofbeldisverka er lagt hafa líf hundruða þúsunda í rúst.

Í sjálfstæðisyfirlýsingu Kósóvó felst skýr skuldbinding um að virða mannréttindi og rétt minnihlutahópa. Er mikilvægt að sú skuldbinding verði virt. Jafnframt er ljóst að varanlega lausn á ólíkum sjónarmiðum Kósóvó-Albana og Serba verður að finna og er miður að ekki náðist samkomulag á grunni tillagna Martti Ahtisaari, sáttasemjara Sameinuðu þjóðanna. Miklu máli skiptir að alþjóðasamfélagið styðji áfram uppbyggingu í Kósóvó og stuðli að varanlegum friði á Balkanskaga.

Vegna hinna sérstöku aðstæðna í Kósóvó mun viðurkenning á sjálfstæði þess ekki hafa fordæmisgildi.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum