Hoppa yfir valmynd
18. febrúar 2008 Utanríkisráðuneytið

Opinn fundur um framlag kvenna til friðarferlisins í Mið-Austurlöndum

: Maha Abu-Dayyeh Shamas, Ingibjörg Sólrún gísladóttir og Anat Saragusti
Maha Abu-Dayyeh Shamas, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Anat Saragusti

Opinn fundur um framlag kvenna til friðarferlisins í Mið-Austurlöndum með fulltrúum friðarráðs palestínskra og ísraelskra kvenna verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík, miðvikudaginn 20. febrúar.

Fundurinn er haldinn í tilefni heimsóknar tveggja áhrifakvenna úr friðarráðinu, Anat Saragusti, sjónvarpsfréttakonu frá Ísrael, og Maha Abu-Dayyeh Shamas, baráttukonu fyrir auknum réttindum kvenna í Palestínu. Þær munu halda erindi um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs, friðarferlið og aðkomu ráðsins að því.

Friðarráðið var stofnað árið 2005 af áhrifakonum í palestínsku og ísraelsku þjóðlífi; þingmönnum, ráðherrum og forystukonum frjálsra félagasamtaka . Margar þeirra höfðu áður starfað saman að friðarmálum um áratuga skeið. Auk þess eru erlendar áhrifakonur heiðursfélagar, þeirra á meðal Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra en hún kynnist konunum og starfi þeirra á ferð sinni til Mið-Austurlanda sl. sumar. Ráðið, sem nefnist á ensku International Women’s Commission for a Just and Sustainable Palestinian-Israeli Peace, nýtur stuðnings Þróunarsjóðs Sameinuðu þjóðanna fyrir konur, UNIFEM.

Fundarstjóri verður Ólafur Stephensen ritstjóri, en fundurinn, sem fram fer á ensku, er öllum opinn. Hefst hann á miðvikudag kl. 12:15 á Grand Hótel Reykjavík.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum