Hoppa yfir valmynd
3. október 2007 Utanríkisráðuneytið

Stofnun alþjóðlegs landgræðsluskóla á Íslandi

Frá undirritun samnings - lnadgræsluskóli
Sveinn Runólfsson, landgræðslu-stjóri, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og Ágúst Sigurðsson, rektor Landbúnaðar-háskóla Íslands ásamt nemendum skólans

FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu

Nr. 105/2007

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, og Ágúst Sigurðsson, rektor Landbúnaðar­háskóla Íslands, undirrituðu í dag þriggja ára verksamning um uppbyggingu alþjóðlegs landgræðsluskóla til þjálfunar fólks frá þróunarríkjum í landgræðslu og jarðvegsvernd. Stefnt er að því í samvinnu við Háskóla Sameinuðu þjóðanna (United Nations University) að Landgræðsluskólinn verði að loknu þessu verkefni hluti þess skóla, með líku sniði og jarðhita- og sjávarútvegsskólar S.þ., sem reknar eru hér á landi.

Bóklegi hluti námsins fer að mestu leyti fram í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri en starfsþjálfun hjá Landgræðslu ríkisins í Gunnarsholti og í framtíðinni verður leitað eftir samvinnu við fleiri aðila sem vinna að þessum málum. Nú er að ljúka fyrsta sex vikna námskeiði á vegum verkefnisins, og hafa dvalið hér á landi í starfsþjálfun fimm nemendur með tilheyrandi undirbúningsmenntun frá Egyptalandi, Mongólíu, Túnis og Úganda. Næsta ár verður námstíminn lengdur upp í sex mánuði.

Undirbúningur verkefnisins hefur verið unninn í nánu samráði við Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Formaður undirbúningsnefndar er Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri, en Ingibjörg Svala Jónsdóttir, prófessor við Landbúnaðarháskólann veitir því forstöðu.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum