Hoppa yfir valmynd
20. september 2007 Utanríkisráðuneytið

Stofnun stjórnmálasambands við Kamerún

Stofnun stjórnmálasambands við Kamerún
Stofnun stjórnmálasambands við Kamerún

Fastafulltrúar Íslands og Kamerún hjá Sameinuðu þjóðunum, sendiherrarnir Hjálmar W. Hannesson og Martin Belinga-Eboutou, undirrituðu í New York, miðvikudaginn 19. september, yfirlýsingu um stofnun stjórnmálasambands ríkjanna.

Kamerún liggur við vesturströnd Mið-Afríku og er nær fimmfalt stærra en Ísland að flatarmáli. Íbúar landsins eru ríflega 17 milljónir. Kamerún var frönsk og bresk nýlenda fram til ársins 1960 þegar ríkið varð sjálfstætt.

Fastafulltrúarnir ræddu á fundi sínum möguleika á samstarfi ríkjanna, fyrst og fremst á sviði sjávarútvegs.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum