Hoppa yfir valmynd
11. október 2006 Utanríkisráðuneytið

Framlag Íslands í friðarsjóð Sameinuðu þjóðanna

FRÉTTATILKYNNING
úr utanríkisráðuneytinu

Nr. 067

Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, hefur ákveðið að veita framlag sem nemur 1 milljón bandaríkjadala til sérstaks sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna til uppbyggingar friðar í stríðshrjáðum löndum (Peacebuilding Fund). Sjóðurinn var settur á laggirnar af allsherjarþingi S.þ. í september sl. Tilkynnt var um framlag Íslands á framlagafundi sem haldinn var í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York 11. október.

Markmið sjóðsins er að hafa til reiðu fjármagn sem hægt verði að grípa til með skömmum fyrirvara til verkefna sem talin eru gegna lykilhlutverki í uppbyggingu friðar að loknum átökum.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum