Hoppa yfir valmynd
4. apríl 2006 Utanríkisráðuneytið

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga

FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu

Nr. 023

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga 27. maí nk. fer fram í öllum sendiráðum Íslands erlendis og aðalræðisskrifstofum Íslands í New York og Winnipeg og hefst mánudaginn 3. apríl 2006. Einnig er unnt að kjósa utan kjörfundar hjá kjörræðismönnum Íslands erlendis, samanber meðfylgjandi lista.

Æskilegt er að væntanlegir kjósendur hafi samband við ræðismenn áður en þeir koma til að kjósa. Gert er ráð fyrir að kjósendur kynni sér sjálfir hverjir eru í framboði og hvaða listabókstafir eru notaðir í viðkomandi sveitarfélagi. Hagnýtar upplýsingar um kosningarnar má finna á vefsetrinu: www.kosningar.is

Athygli kjósenda er ennfremur vakin á því, að þeim ber sjálfum að póstleggja atkvæði sín eða koma þeim á annan hátt í tæka tíð til viðkomandi kjörstjórnar á Íslandi.

Listi yfir sendiráð og kjörræðisskrifstofur Íslands (Acrobat 84,2 KB)



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum