Hoppa yfir valmynd
20. desember 2005 Utanríkisráðuneytið

Ráðherrar kveikja á vetnisrafali við Flugstöð Leifs Eiríkssonar

FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
________

Nr. 039


Geir H. Haarde utanríkisráðherra og Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra kveiktu á vetnisrafali við Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli í dag. Rekstur rafalsins verður hluti af tilraunaverkefni verkfræðideildar Bandaríkjahers (The United States Army Corps of Engineers) með vetni sem varaafl. Íslendingar og Bandaríkjamenn standa sameiginlega að þessum hluta tilraunverkefnisins sem gert er ráð fyrir að standi yfir í eitt ár. Markmið tilraunarinnar er að kanna áreiðanleika vetnisrafals sem varaafls í breytilegri veðráttu. Tekið var mið af íslensku veðurfari og reynslu Íslendinga af vetnistilraunum við staðarvalið. Vetnisrafalinn verður ræstur tvisvar á sólarhring og framleiðir raforku fyrir ljósabúnað við flugstöðina.

Þátttaka Íslendinga í verkefninu og uppsetning búnaðarins í Keflavík ber vott um góð samskipti Íslands og Bandaríkjanna. Utanríkisráðuneytið annaðist undirbúning verkefnisins hér á landi í náinni samvinnu við iðnaðarráðuneytið og Íslenska NýOrku. Það endurspeglar áherslur stjórnvalda á sviði auðlindamála og þróun nýrrar tækni til að nýta betur endurnýjanlegar orkulindir landsins.

Íslensk NýOrka annast rekstur vetnisrafalsins við flugstöðina í samstarfi við bandaríska verkfræði- og rannsóknasetrið, US Army Corps of Engineers og LoganEnergy. Íslensk NýOrka var stofnuð 1999 til undirbúnings vetnissamfélagi á Íslandi. Að fyrirtækinu standa Vistorka, sameignarfyrirtæki ýmissa íslenskra aðila, DaimerChrysler, Shell Hydrogen og Norsk Hydro.
 
Meðfylgjandi eru tvær myndir af rafalinum.

 
 
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 20. desember 2005.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum