Hoppa yfir valmynd
9. ágúst 2005 Utanríkisráðuneytið

Viðskiptasendinefnd til Japans

Útflutningsráð, í samstarfi við utanríkisráðuneytið og sendiráð Íslands í Japan, er þessa dagana að undirbúa fjölmenna viðskiptasendinefnd sem fer til Japans dagana 10.-15. september n.k. Davíð Oddsson, utanríkisráðherra, mun fara fyrir sendinefndinni.

Vilhjálmur Guðmundsson, forstöðumaður hjá Útflutningsráði, segir að ferðin sé sniðin bæði að þeim fyrirtækjum sem séu þegar í viðskiptum á svæðinu og þeim sem vilji hefja samstarf eða markaðssókn inn á þennan markað. Einnig henti hún þeim aðilum sem tengjast þróunarstarfi, fjármögnun og rannsóknum.
Skipulögð verður viðskiptaráðstefna, lítil sýning, fyrirtækjastefnumót og móttaka á Le Merdian hótelinu í Tókýó. Farið verður til Nagoya á heimssýninguna Expo 2005 sem lýkur síðar í mánuðinum. Útflutningsráð hefur valið samstarfsaðila í Tokyo sem þekkja mjög vel til á þessum markaði og hafa reynslu í skipulagningu viðskiptafunda. Þeirra hlutverk verður að skipuleggja viðskiptafundi fyrir þátttakendur í sendinefndinni, sem þess óska, í samráði við Útflutningsráð.

Frekari upplýsingar um ferð viðskiptasendinefndarinnar veita Vilhjálmur Guðmundsson og Theodór A. Bjarnason í síma 511 4000 eða með tölvupósti, [email protected], [email protected].

Skráningu er lokið fyrir þá sem óska eftir þjónustu og skipulagningu viðskiptafunda en möguleiki er að bæta við nokkrum fyrirtækjum til 12. ágúst sem ekki þurfa á áðurnefndri þjónustu að halda.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum