Hoppa yfir valmynd
17. maí 2005 Utanríkisráðuneytið

Ávarp Davíðs Oddssonar á leiðtogafundi Evrópuráðsins

Davíð Oddsson, utanríkisráðherra, ávarpaði í dag leiðtogafund Evrópuráðsins sem stendur yfir í Varsjá í Póllandi.

Í máli utanríkisráðherra kom fram að eining Evrópu væri háð lýðræði og virðingu fyrir mannréttindum og grunnvallarreglum réttarríkisins. Hér hefði Evrópuráðið einstöku hlutverki að gegna.

Utanríkisráðherra lagði áherslu á mikilvægi Mannréttindadómstóls Evrópu og lykilhlutverk hans í starfi Evrópuráðsins. Jafnframt vakti utanríkisráðherra athygli á brýnni þörf fyrir umbætur á störfum dómstólsins sérstaklega í ljósi gífurlegrar aukningar á málum sem berast til hans. Þá vakti ráðherra athygli á að dómstóllinn hefði á síðari árum verið að breytast í einskonar áfrýjunardómstól jafnvel í málum sem ekki tengdust beint mannréttindabrotum. Hann sagði að dómstóllinn ætti að leggja megin áherslu á mál sem varða grundvallar mannréttindi.

Á leiðtogafundinum undirritaði ráðherra þrjá samninga sem gerðir hafa verið á vettvangi Evrópuráðsins. Þetta eru samningur gegn hryðjuverkum, samningur sem tekur á fjármögnun hryðjuverkastarfsemi og samningur um aðgerðir gegn mansali.

Ávarp utanríkisráðherra (á ensku).

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum