Hoppa yfir valmynd
12. maí 2005 Utanríkisráðuneytið

Samningur Íslands og Kína um hagkvæmnikönnun

Davíð Oddsson, utanríkisráðherra, og Bo Xilai, utanríkisviðskiptaráðherra Kína, hafa undirritað samkomulag milli landanna sem er undanfari fríverslunarviðræðna. Samkomulagið felur í sér að gerð verður sameiginleg hagkvæmnikönnun til undirbúnings fríverslunarsamnings milli landanna og er Ísland fyrsta ríkið í Evrópu sem Kína gerir slíkt samkomulag við. Íslenskt atvinnulíf hefur aukið verulega samskipti við kínverska aðila á undanförnum árum, sérstaklega eftir að sendiráð var opnað í Peking árið 1995. Utanríkisráðuneytið og sendiráð Íslands í Peking hafa leitast við að greiða fyrirtækjum leið inn á kínverska markaðinn bæði með beinni aðstoð viðskiptafulltrúa og því að byggja upp samninganet við Kína og er þetta samkomulag liður í þeirri viðleitni.

Í hagkvæmnikönnun felst að safnað verður saman upplýsingum um viðskiptahagsmuni, lagaumhverfi, fjárfestingar- og þjónustumöguleika sem skipta máli fyrir væntanlegar fríverslunarsamningaviðræður landanna. Hagkvæmnikönnunin er sá grunnur sem byggt verður á þegar fríverslunarsamningaviðræður hefjast. Í samkomulaginu er einnig yfirlýsing um að Ísland viðurkennir stöðu Kína sem markaðshagkerfis. Í því felst að Ísland mun ekki beita auknum heimildum til verndaraðgerða gegn kínverskum innflutningi, sem veittar voru í aðildarsamningi Kína að Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO) á sínum tíma, en hefur áfram sömu heimildir gagnvart Kína eins og gagnvart öðrum aðildarríkjum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar.

Ísland hefur almennt gert fríverslunarsamninga innan samstarfs EFTA ríkjanna, með Sviss, Noregi og Liecthenstein. Í þessu tilviki er hins vegar um tvíhliða samkomulag Íslands og Kína að ræða og verður rætt innan EFTA samstarfsins um hugsanlega aðkomu hinna EFTA ríkjanna á síðari stigum.

china-Iceland press release



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum