Hoppa yfir valmynd
24. ágúst 2004 Utanríkisráðuneytið

Afhending trúnaðarbréfs

Stefán Skjaldarson, sendiherra, afhenti í dag, 24. ágúst, Brankó Crvnkovski forseta Makedóníu trúnaðarbréf sem sendiherra Íslands í Makedóníu með búsetu í Osló.

Í stuttu máli kom fram að Makedónía leggur ofuráherslu á aðild sína að NATO og Evrópusambandinu. Þá lagði forsetinn áherslu á að efla bæri viðskiptatengsl Íslands og Makedóníu.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum