Hoppa yfir valmynd
13. mars 2003 Utanríkisráðuneytið

Alþingiskosningar 2003 - utankjörfundaratkvæðagreiðsla

Nr. 022

FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu


Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninga 10. maí 2003 hefst 15. mars nk. og fer fram hjá sendiráðum Íslands erlendis, fastanefnd Íslands hjá Evrópuráðinu og aðalræðisskrifstofum Íslands í New York og Winnipeg. Einnig er unnt að kjósa utan kjörfundar hjá kjörræðismönnum Íslands erlendis, samanber meðfylgjandi lista.

Væntanlegum kjósendum er vinsamlegast bent á að hafa samband við ræðismenn áður en þeir koma til að kjósa. Gert er ráð fyrir að kjósendur kynni sér sjálfir hverjir eru í framboði og hvaða listabókstafir eru notaðir. Hagnýtar upplýsingar um kosningarnar má finna á vefsetrinu: www.kosning2003.is.

Athygli kjósenda er ennfremur vakin á því, að þeim ber sjálfum að póstleggja atkvæði sín eða koma þeim á annan hátt í tæka tíð til viðkomandi kjörstjórnar á Íslandi.



Utanríkisráðuneytið
Reykjavík,



- Uppfærður og endurbættur listi yfir kjörstaði erlendis

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum