Hoppa yfir valmynd
5. desember 2003 Utanríkisráðuneytið

Stofnun stjórnmálasambands við Austur-Tímor

Nr. 147

Þann 4. desember 2003 undirrituðu Hjálmar W. Hannesson, fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum og José Luis Guterres, fastafulltrúi Austur-Tímor hjá Sameinuðu þjóðunum, samkomulag um stofnun stjórnmálasambands milli Íslands og Austur-Tímor.

Sendiráð Íslands í Tókýó fer með fyrirsvar Íslands gagnvart Austur-Tímor.


Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 5. desember 2003.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum