Hoppa yfir valmynd
5. febrúar 1996 Utanríkisráðuneytið

50 ára afmæli S.þj. og Félag S.þj.

FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
_____________


Nr. 009



Nefnd utanríkisráðuneytisins vegna 50 ára afmælis Sameinuðu þjóðanna og félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi hafa gefið
út bækling um samtökin.

Bæklingurinn er sniðinn að þörfum skólafólks en gagnast einnig sem almennt upplýsingarit um Sameinuðu þjóðirnar.
Jafnframt er fjallað um starf Íslands innan samtakanna og mikilvægi þeirra fyrir íslenska hagsmuni.

Bæklingnum verður dreift á öll almenningsbókasöfn, skólabókasöfn, í félagsmiðstöðvar og til æskulýðssamtaka. Einnig
verður hægt að fá hann í afgreiðslu utanríkisráðuneytisins, Rauðarárstíg 25, og hjá Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi,
Austurstræti 17, Reykjavík.



Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 5. febrúar 1996

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum