Hoppa yfir valmynd
25. maí 2000 Utanríkisráðuneytið

Nr. 037, 25. maí 2000. Opnun ljósmyndasýningar á Akureyri um sögu Utanríkisþjónustunarinnar.

FRÉTTATILKYNNING

frá utanríkisráðuneytinu




Nr. 037


Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, mun opna ljósmyndasýningu um sögu utanríkisþjónustunnar í Amtsbókasafninu á Akureyri næstkomandi mánudag, 29. maí, kl. 17.00. Utanríkisráðherra mun einnig halda fyrirlestur um utanríkisþjónustuna og utanríkismál Íslands.

Jafnframt mun utanríkisráðherra taka þátt í kynningu á starfsemi Viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins á meðal fyrirtækja á Akureyri og af Eyjafjarðarsvæðinu, í samvinnu við Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar. Kynningin verður haldin á Hótel KEA og hefst kl. 15.30.

Ljósmyndasýningin er sett upp í tilefni af sextíu ára afmæli utanríkisþjónustunnar og stendur til loka júnímánaðar. Sýningin var fyrst opnuð í Þjóðarbókhlöðunni á afmælisdegi utanríkisþjónustunnar þann 10. apríl síðastliðinn, en hefur nú verið sett upp á Akureyri.

Dagskrá utanríkisráðherra á Akureyri mánudaginn 29. maí 2000 er eftirfarandi:

15.30-16.30 Kynning á Viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins, Hótel KEA.

17.00-17.20 Fyrirlestur utanríkisráðherra um utanríkisþjónustuna og íslensk utanríkismál á Amtsbókasafninu á Akureyri.

17.30. Utanríkisráðherra opnar ljósmyndasýninguna, Amtsbókasafnið, Brekkugötu 17, Akureyri.






Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 25. mai 2000.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum