Hoppa yfir valmynd
3. nóvember 1998 Utanríkisráðuneytið

Nr. 103, 3. nóvember 1998:Nýr mannréttindadómstóll Evrópu.

Nýr mannréttindadómstóll Evrópu tók til starfa í dag við hátíðarathöfn í höfuðstöðvum Evrópuráðsins í Strassborg.

Dómstóllinn leysir af hólmi eldri mannréttindadómstól Evrópu og mannréttindanefnd Evrópu. Einn dómari frá hverju aðildarríki Evrópuráðsins á sæti í dóminum. Dr. Gaukur Jörundsson situr í dóminum af hálfu Íslands.

Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra og Þorsteinn Pálsson dóms- og kirkjumálaráðherra voru meðal gesta við athöfnina.


Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 3. nóvember 1998.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum