Hoppa yfir valmynd
26. maí 1998 Utanríkisráðuneytið

Nr. 047, 26. maí 1998: VES - Nýbúar

Fréttatilkynning
frá utanríkisráðuneytinu



Nr. 47.

Utanríkisráðuneytið vísar alfarið á bug frétt sem birtist í DV þriðjudaginn 26. maí 1998 þar sem skýrt er frá fréttaflutningi um að íslensk stjórnvöld styðji svokallaðar nýbúanjósnir á vettvangi Vestur-Evrópusambandsins (VES). Fréttin er algerlega úr lausu lofti gripin og þetta málefni hefur ekki komið til umfjöllunar eða umræðu á vettvangi VES-ráðsins. Ráðuneytið harmar þennan málflutning sem er til þess fallin að vekja grunsemdir meðal nýbúa gagnvart íslenskum stjórnvöldum.


Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 26. maí 1998.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum