Hoppa yfir valmynd
11. febrúar 2000 Utanríkisráðuneytið

Nr. 010, 11. febrúar 2000. Kveðjuheimsókn General Wesley K. Clark

FRÉTTATILKYNNING

frá utanríkisráðuneytinu

________




Nr. 10


Wesley K. Clark, yfirmaður Evrópuherstjórnar Atlantshafsbandalagsins, SACEUR, kemur í kveðjuheimsókn til Íslands næstkomandi mánudag, 14. febrúar 2000.

Hann mun eiga fund með Davíð Oddssyni, forsætisráðherra og Halldóri Ásgrímssyni, utanríkisráðherra, árla á mánudagsmorgun í ráðherrabústaðnum.

Athygli fjölmiðla er vakin á því að boðað er til fundar með blaðamönnum í kjölfar fundar forsætis- og utanríkisráðherra með SACEUR.

Blaðamannafundurinn veður haldinn í ráðherrabústaðnum, Tjarnargötu 32, og hefst kl. 09.15 mánudaginn 14. febrúar 2000.

Upplýsingar um æviágrip Wesley K. Clark, yfirmanns Evrópuherstjórnar Atlantshafsbandalagsins, eru hjálagðar.



- SCAN1443.TIF




Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 11. febrúar 2000.







Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum