Hoppa yfir valmynd
23. janúar 1996 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherrafundur Norðurlanda

FRÉTTATILKYNNING frá utanríkisráðuneytinu

Nr. 003

Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra sat í dag, 23. janúar 1996, utanríkisráðherrafund Norðurlandanna í Helsinki.

Á fundinum ræddu ráðherrarnir um Evrópumálefni, ástand mála í fyrrum Júgóslavíu, svæðisbundið samstarf í Norður-Evrópu, þ.m.t. Eystrasaltsráðið, Barentsráðið og hið fyrirhugaða Norðurskautsráð.

Ráðherrarnir ræddu einnig um mannréttindamál í Burundi, Myanmar (Burma), Nígeríu, Írak, Íran, Tyrklandi og Kína.

Eftir fundinn var gefin út meðfylgjandi fréttatilkynning, þar sem aðallega er fjallað um ástandið í fyrrum Júgóslavíu, svæðisbundið samstarf í Norður-Evrópu og Evrópumálefni.

Utanríkisráðuneytið,

Reykjavík, 23. janúar 1996.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum