Fani_Kanada
2.7.2009
Gildistaka fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Kanada og tvíhliða landbúnaðarsamnings milli Íslands og Kanada

Þann 1. júlí tók gildi nýr fríverslunarsamningur milli EFTA-ríkjanna og Kanada, svo og tvíhliða landbúnaðarsamningur milli Íslands og Kanada.

Fríverslunarsamningur EFTA-ríkjanna og Kanada er sá fyrsti sinnar tegundar sem Kanada gerir við ríki í Evrópu. Samningurinn nær fyrst og fremst til vöruviðskipta. Samningsaðilar munu þegar við gildistöku samningsins fella niður tolla á sjávarafurðir og iðnaðarvörur, þó með þeirri undantekningu að Kanada er veittur allt að fimmtán ára aðlögunartími til niðurfellingar tolla á skip og sjóför. Tollar verða jafnframt lækkaðir eða felldir niður af unnum landbúnaðarvörum, í samræmi við ákvæði samningsins.


Nánar >>