Edda Erlendsdottir
27.5.2009
Hljómleikaferð Eddu Erlendsdóttur um Kína

Edda Erlendsdóttir píanóleikari hélt í hljómleikaferð um Kína dagana 9. til 21.apríl s.l. Alls hélt hún ferna tónleika í jafnmörgum borgum, en ferð hennar var skipulögð að frumkvæði sendiráðsins og í samstarfi við kynningarfyrirtækið Beijing Victory Culture Development sem sérhæfir sig í að koma listafólki á framfæri.

Edda hóf tónleikaferð sína í tónlistarhöll Beijing háskóla. Uppselt var á tónleikana og hlaut hún afbragðsviðtökur gesta. Þá hélt Edda mjög vel heppnaða tónleika í Zhoushan, Ningbo og Wenzhou sem allar eru milljónaborgir.

Mjög góð aðsókn var að tónleikum Eddu, og í Zhoushan, sem dæmi, sóttu ríflega 600 manns tónleikana. Að þeim loknum var hún umsetin ungum aðdáendum og fjölmiðlum, þ.á m. Zhoushan Evening Paper , virtasta tímariti Zhoushan sem skrifaði langa grein um tónleikana og fór lofsamlegum orðum um frammistöðu Eddu.


Nánar >>

Þetta vefsvæði byggir á Eplica